Leggðu bílnum með farsímanum þínum - Betri leið til að leggja fyrir fólk á ferðinni

Lesa nánar Prenta P-miða Sækja forrit fyrir Android síma

Upplýsingar


Þjónustuleiðir

Hægt er að velja tvær þjónustuleiðir - mánaðargjald og þjónustugjald:

Mánaðargjald
Fyrir hvert símanúmer: 419 kr.
- Greitt er mánaðargjald fyrir hvert símanúmer sem hefur aðgang að þjónustu leggja.is. Að öðru leyti kostar ekkert aukalega að nota þjónustuna nema slíkt sé valið (sjá Önnur gjöld).

Þjónustugjald
Fyrir hvert skipti sem bíll er skráður í stæði: 74 kr.
- Í þessari þjónustuleið er innheimt þjónustugjald í hvert skipti sem bíl er lagt í gegnum leggja.is. Ekki eru greidd mánaðargjöld. Að öðru leyti kostar ekkert aukalega að nota þjónustuna nema slíkt sé valið (sjá Önnur gjöld).

Önnur gjöld fyrir notkun leggja.is:

  • Hver kvittun og tilkynning: 10 kr.
  • Sjálfvirk innskráning í stæði: 10 kr.
  • Senda SMS P í 1900: 10 kr.
  • Innskráning af þjónustuveri: 299 kr.
  • Límmiði: 99 kr.
  • Sendingargjald fyrir límmiða: 149 kr.


Innheimt er fyrir stöðugjöldin samkvæmt verðskrám Bílastæðasjóðs Reykjavíkur og Hörpunar Bílastæðahús og eingöngu er greitt á meðan gjaldskylda er. Viðskiptavinur greiðir stöðugjöld fyrir þann tíma sem bíllinn er skráður inn hverju sinni og ekki þarf að velja fyrirfram hversu lengi er ætlunin að hafa bílinn skráðan í stæði. Innheimt er fyrir hverjar byrjaðar 5 mínútur og gjaldtöku síðan hætt þegar bíllinn er skráður út aftur.


Skráðu þig núna

Þú smellir einfaldlega P miðanum, merki þjónustunnar í framrúðuna og parkerar kagganum á þínum forsendum. Þú greiðir aðeins fyrir þann tíma sem bílnum er lagt og þarft því ekki að ákveða fyrirfram hversu lengi þú ætlar að leggja.

Hringdu

Þú hringir í 770 1414 og velur það gjaldsvæði sem þú vilt leggja á með því að ýta á viðkomandi takka á símanum þínum og frá og með þeim tíma hefst gjaldtakan.

Til að stöðva gjaldtöku er hringt í sama númer og ýtt á 5.

Sendu SMS

Þú sendir SMS með innihaldinu P í númerið 1900 til að skrá bílinn inn og alveg eins til að skrá bílinn út
Til að skrá bílinn í ákveðið gjaldsvæði sendur þú SMS með innihaldinu P 1, P 2, P 3 eða P 4, eftir því hvaða gjaldsvæði þú ert á eða P 0 fyrir Hörpuna bílahús.
Til að skrá annan bíl en þú ert vanalega á þá sendir þú SMS með innihaldinu P gjaldsvæði bílnúmer. Dæmi: P 3 AB123 til að skrá bílinn AB123 í gjaldsvæði 3.



Gleymdi að skrá mig út

Í lok dags eru allir bílar skráðir sjálfkrafa úr stæði ef þeir eru ennþá skráðir inn. Þar af leiðandi þarf ekki að hafa áhyggjur af að greitt sé fyrir stæði í marga daga.

Eingöngu er rukkað fyrir þann tíma sem gjaldskylda er.

Sjálfvalinn bíll

Þú getur breytt þeim bíl sem er sjálfvalinn með því að fara inn á leggja.is / Símanúmer / Bílar og skrá þar bílnúmerið á þeim bíl sem á að vera sjálfvalinn fyrir valið símanúmer.

Fleiri bílar

Já, það er ekkert mál. Þú skráir þig inn á leggja.is, velur Símanúmer, skráir inn nýja símanúmerið og þann bíl sem á að vera sjálfvalinn fyrir það símanúmer. Ef þú vilt leggja öðrum bíl en þú ert vanalega á þá sendirðu SMS (sjá Sendu SMS).



  • SMS áminning
  • Kvittun með tölvupósti
  • Sjálfvirk inn- og útskráning
  • Þjónustuver

Aukaþjónusta

SMS áminning

Mikið að gera? Fáðu SMS áminningu þegar bílnum hefur verið lagt í ákveðinn tíma. Þá veistu hvað tímanum líður og ert með þitt á hreinu.

Kvittun með tölvupósti

Fáðu senda kvittun með tölvupósti þegar gjaldfært hefur verið á kortið þitt. Örugg og þægileg leið til að fá yfirlit yfir bílastæðakostnað.

Sjálfvirk inn- og útskráning

Ertu með góða rútínu? Forðastu allt óþarfa vesen. Láttu Leggja bara skrá bílinn þinn sjálfvirkt í og úr stæðum á fyrirfram ákveðnum tímum.

Þjónustuver

Þú nærð sambandi við þjónustuverið með því að hringja í 770 1414 og velja 9.

Stundum er gott að hafa einhvern að tala við. Þjónustuver Leggja svarar öllum spurningum og vangaveltum með glöðu geði, og er opið alla virka daga frá 8-18 og laugardaga frá 10-13.