... að þú getur fengið SMS áminningar þegar bíllinn er búinn að vera ákveðið lengi skráður í stæði?
Þú ferð einfaldlega í Aukaþjónusta og velur SMS áminningu eftir 1,2,3 eða 4 klst. Eftir það þá færðu alltaf senda áminningu frá okkur þegar bíllinn hefur verið skráður í stæði eins lengi og þú valdir.
... að þú getur fengið kvittun senda í tölvupósti í hvert skipti sem gjaldfært er fyrir þjónustuna?
Ef þú þarft kvittun í bókhaldið þá er tilvalið að fá hana senda jafnóðum með tölvupósti. Þú ferð einfaldlega í Aukaþjónusta og hakar við að fá kvittun senda í email.
... að þú getur lagt hvaða bíl sem er með því að senda SMS skeyti?
Þú sendir einfaldlega SMS skeyti með gjaldsvæðisnúmeri og bílnúmeri á númerið 1900 og við skráum þann bíl í stæði. Dæmi þar sem bílnum AB123 er lagt í gjaldsvæði 2: P 2 AB123. Ath. að viðkomandi bíll þarf að hafa merki þjónustunnar í glugganum.
... að þú getur látið Leggja skrá þig sjálfvirkt í og úr stæði alla virka daga?
Ef þú ert með góða rútínu og ert alltaf skráður í ákveðið gjaldsvæði alla daga, þá geturðu haft samband við okkur á leggja@leggja.is eða hringt í þjónustuverið okkar í síma 770-1414, og beðið um þessa þjónustu.